Ljúfir vortónar á Gljúfrasteini
18/04 2026María Konráðsdóttir sópran, Sergio Coto Blanco lútu- og teorbuleikari og Sólveig Thoroddsen hörpuleikari flytja ljúfa tóna á Gljúfrasteini, laugardaginn 18. apríl, klukkan 15.
Á tónleikunum „All the air of love and pleasure speaks“ á Gljúfrasteini flytja María Konráðsdóttir sópran, Sergio Coto Blanco lútu-og teorbuleikari og Sólveig Thoroddsen hörpuleikari sönglög eftir tvö framúrskarandi ensk tónskáld fyrri tíma, þá John Dowland og Henry Purcell. John Dowland (1563-1626) var frægasti lútuleikari sinnar kynslóðar og lagræn og tjáningarík sönglög hans njóta sín hér sérstaklega vel með undirleik á lútu. Árið í ár markar einmitt 400 ára dánarafmæli Dowlands, sem ferðaðist um alla Evrópu og starfaði við ýmsar hirðir. Sönglög hans tjá mannlegar tilfinningar sem við könnumst enn ósköp vel við og meðal yrkisefna eru tár, hinn huggandi svefn og ástin á vorin.
Henry Purcell (1659-1695) var mikill söngvasmiður og sönglög hans fyrir leikhús njóta enn mikilla vinsælda í dag. Purcell var sérstaklega laginn í því að láta textann falla vel að tónlistinni og tjá tilfinningar í tónum á hrífandi hátt, hvort sem hann lofsyngur einsemdina eða töframátt tónlistarinnar. Undirleikur á strengjahljóðfærin hörpu og teorbu ljær lögunum innilegan blæ.
Öll hjartanlega velkomin.Tónleikarnir hefjast klukkan 15. Aðgangseyrir er 1500 krónur.
Mosfellsbær styrkir viðburðinn.
Sergio Coto Blanco, María Konráðsdóttir og Sólveig Thorodssen