Lifir Íslandsklukkan? Áttatíu ára útgáfuafmæli

16/03 2026

Vinafélög Gljúfrasteins og Árnastofnunar bjóða upp á viðburð í Eddu í tilefni útgáfuafmælis Íslandsklukkunnar en lokabindið Eldur í Kaupinhafn kom út árið 1946.

  • Tómas Ævar Ólafsson rekur upphaf Aldrei las ég Laxness klúbbsins. 
  • Þær Fjóla Gerður Gunnarsdóttir og Hildur Ýr Ísberg segja frá upplifun sinni af verkinu.
  • Lilja Nótt Þórarinsdóttir bregður sér í hlutverk Snæfríðar Íslandssólar.
  • Félagar í leikhópnum Elefant segja frá uppsetningu sinni á verkinu og flytja valdar senur.

Halldór Guðmundsson stýrir umræðum í lokin.

Léttar veitingar á kaffihúsinu Ými að viðburði loknum.

Viðburður á Facebook

Íslandsklukkan - Eldur í Kaupinhafn 1946