Kristín Jóhannesdóttir og Strompleikurinn
17/05 2025Laugardaginn 17. maí klukkan 15 heldur Kristín Jóhannesdóttir erindi á Gljúfrasteini um uppsetningu sína á Strompleiknum eftir Halldór Laxness í Þjóðleikhúsinu árið 2001. Sólveig Arnarsdóttir og Sigríður Láretta Jónsdóttir leiklesa valinn kafla úr verkinu.
Kristín fjallar líka stuttlega um leikrit Laxness í heild. Leikverk hans hafa oft þótt torskilin en þau eru á meðal fyrstu tilrauna til módernískrar leikritunar á Íslandi.
Uppsetning Kristínar á Strompleiknum var djörf og sýn hennar á verkið áberandi önnur en þeirra sem áður höfðu sett það á svið.
Við hvetjum allt áhugafólk um leikhús og bókmenntir til að mæta á viðburðinn.
Aðgangur ókeypis.

Úr uppsetningu Kristínar Jóhannesdóttur á Strompleiknum árið 2001. Ljósmyndir: Grímur Bjarnason