Jelena Ćirić og tríó
30/08 2026Síðustu stofutónleikar sumarsins á Gljúfrasteini verða haldnir þann 30. ágúst. Þá mun söngvaskáldið Jelena Ćirić stíga á stokk ásamt Margréti Arnardóttur, harmónikuleikara og Karli Pestka, víóluleikara. Jelena hefur hlotið fimm tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna og unnið Íslensku tónlistarverðlaunin
fyrir Þjóðlagaplötu ársins 2021.
Í tónlist hennar má heyra áhrif frá Serbíu, þar sem hún fæddist sem og frá Kanada þar sem hún ólst upp.
Fyrst og fremst er það þó rödd hennar og frásagnarlist sem snerta hjartastrengi áheyrenda.
Tóndæmi: https://www.youtube.com/watch?v=q5iOlOIUw1E
Tónleikarnir hefjast klukkan 16.00 og miðarverð er 3900 krónur.
Verið hjartanlega velkomin að hlýða á notarlega tóna í stofunni á Gljúfrasteini.
Jelena Ćirić