Ingibjörg Elsa Turchi og hljómsveit

Ingibjörg Elsa Turchi og hljómsveit hennar koma fram á stofutónleikum á Gljúfrasteini 31. október. Þetta eru næstsíðustu tónleikarnir sem haldnir verða í stofunni í þessari hausttónleikaröð. 

Ingibjörg Elsa Turchi

Ingibjörg Elsa Turchi og hljómsveit hennar koma fram á stofutónleikum á Gljúfrasteini 31. október. Þetta eru næstsíðustu tónleikarnir sem haldnir verða í stofunni í þessari hausttónleikaröð. 

Bassaleikarinn og tónskáldið Ingibjörg Elsa Turchi hefur verið afar sýnileg í íslensku tónlistarlífi síðustu ár og hefur komið fram með mörgum af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar, svo sem Emilíönu Torrini, Bubba Morthens, Teiti Magnússyni og Stuðmönnum svo fátt eitt sé nefnt. Einnig hefur hún samið verk fyrir Sinfóníuhljomsveit Íslands sem frumflutt var í apríl 2021 á vegum Ung-Yrkju verkefnis SÍ og Tónverkamiðstöðvar. Ingibjörg kemur reglulega fram undir eigin nafni þar sem hún kannar hljóðheim rafmagnsbassans, sem er hennar aðalhljóðfæri. Ingibjörg gaf út stuttskífuna Wood/Work árið 2017 þar sem bassinn var í aðalhlutverki. Í julí 2020 gaf Ingibjörg út sína fyrstu plötu í fullri lengd, Meliae, og hélt áfram að víkka út hljóðheim sinn með hjálp hljómsveitar sinnar. Á pæötunni ægir saman djassi, tilraunamennsku og naumhyggju í ómþýðri blöndu. Endurtekningar eru í fyrirrúmi. Hljóðfæri á borð við saxófón, gíat og bassa eru afbyggð með hjálp raftækja og síðan byggð upp aftur. Þannig skapa Ingibjörg og félagar einstakan og dáleiðandi hljóðheim þar sem hið kunnuglega verður framandi á ný. Árið 2020 hlaut platan Meliae Kraupmsverðlaunin, var valin plata ársins af Morgunblaðinu og straum.is og fékk 5 stjörnur í gagnrýni Morgunblaðsins. Á íslensku tónlistarverðlaununum 2021 hlaut Ingibjörg sex tilnefningar og hlaut tvenn verðlaun, annars vegar fyrir plötu ársins í flokki Djass- og blústónlistar og fyrir upptökustjórn í opnum flokki. 

Á stofutónleikunum á Gljúfrasteini koma fram:

Ingibjörg Elsa Turchi - Rafbassi
Tumi Árnason - Saxófónn
Magnús Trygvason Eliassen - Trommur
Hróðmar Sigurðsson - Gítar
Magnús Jóhann Ragnarsson - Píanó

Tónleikarnir hefjast kl. 16. Aðgangseyrir er 3500 kr. 
 

Til baka í viðburði