Iceland Writers Retreat á Gljúfrasteini

Dagana 27. apríl – 1. maí fara ritlistarbúðirnar Iceland Writers Retreat fram í sjöunda sinn. Líkt og undanfarin ár hefur hópurinn viðkomu á Gljúfrasteini en að þessu sinni er það Ármann Jakobsson, rithöfundur og prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda, sem mun halda erindi fyrir þátttakendur í stofu skáldsins.