Hrafnaspark á Gljúfrasteini
09/08 2026Næstir í tónleikaröðinni er djangojazztríóið Hrafnaspark.
Tríóið Hrafnaspark var stofnað á Akureyri vorið 2001 og var fyrsta hljómsveit landsins sem flutti sígaunadjass, tónlistarstíl sem mótaðist einkum af leik gítarleikarans Django Reinhardt og hljómsveit hans, Quintette du Hot Club de France, í Frakklandi á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar.
Tríóið sem í ár fagnar 25 ára starfsafmæli, hefur frá upphafi verið skipað gítarleikurunum Jóhanni Guðmundssyni, Ólafi Hauki Árnasyni og bassaleikaranum Pétri Ingólfssyni. Félagarnir hafa komið víða við á þessum tíma, jafnt hérlendis sem erlendis. Platan Hrafnaspark kom út árið 2006 og var hvarvetna vel tekið.
Á tónleikunum flytur Hrafnaspark fjölbreytta tónlist úr ýmsum áttum. Auk sígildra sígaunadjass-slagara verður íslensk tónlist leikin í anda Django Reinhardt, sem og nýrri dægurlög.
Miðar eru afgreiddir á tónleikadaginn í afgreiðslu safnsins og er miðaverðið 3900 kr.
Hér eru upplýsingar um alla stofutónleika Gljúfrasteins 2026
Gestum er bent á að hægt er að leggja bílum við Jónstótt við Gljúfrastein.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Ólafur Haukur Árnason, Pétur Ingólfsson og Jóhann Guðmundsson skipa tríóið Hrafnaspark.