Hið íslenska gítartríó og ljóðrænir valsar

20/07 2026


Hið íslenska gítartríó kemur fram á stofutónleikum Gljúfrasteins þar sem ljóðrænir valsar verða í fyrirrúmi. Á efnisskránni verða verk eftir Enrique Granados og Frederik Holm, auk þess sem verkið Vinargreiði eftir Oliver Kentish verður frumflutt.

Hið Íslenska Gítartríó var stofnað árið 2011 og hefur síðan þá verið leiðandi hópur í flutningi á klassískri gítartónlist á Íslandi. Tríóið hefur flutt ný íslensk verk sérstaklega samin fyrir hópinn í bland við þekktari verk tónbókmenntanna og hefur með því markað sér sérstöðu á alþjóðlega vísu og fjölgað verkum fyrir þessa hljóðfæra samsetningu svo um munar. Á meðal þeirra tónskálda sem samið hafa verk fyrir tríóið eru Oliver Kentish, Hróðmar I. Sigurbjörnsson, Elín Gunnlaugsdóttir, Hildigunnur Rúnarsdóttir, Sveinn Lúðvík Björnsson og Ari Hálfdán Aðalgeirsson.

Af verkefnum undanfarin ár má nefna tónleika á Myrkum Músíkdögum, samstarf við Gítartríó Kaupmannahafnar, afmælistónleika Olivers Kentish 2014 og útgáfutónleika í Norðurljósasal Hörpu þar sem fagnað var útgáfu disksins Vistas sem tilnefndur var til Íslensku tónlistarverðlaunana í flokki sígildrar og samtímatónlistar 2022. Tríóið skipa Þórarinn Sigurbergsson, Þröstur Þorbjörnsson og Svanur Vilbergssson

Tónleikar tríósins fara fram sunnudaginn 26. júlí kl. 16. Aðgangseyrir er 3.900 krónur og miðar eru seldir í afgreiðslu safnsins fyrir tónleika. Öll eru hjartanlega velkomin. 

Þórarinn Sigurbergsson, Þröstur Þorbjörnsson og Svanur Vilbergsson gítarleikarar.