Draumaríngl

14/03 2026

Myndlistarfólkið sem stendur fyrir verkefninu Draumaríngl heimsótti safnið í dag.

Verkefnið er tilraun til að teygja mörk þess sem hægt er að gera á Gljúfrasteini, og kanna hvernig það reynist sem vettvangur til þess að sýna nútímamyndlist. Safnið er fullt af gersemum eftir myndlistarmenn síðustu aldar sem gestir komast í návígi við og er þar með einstakt myndlistarsafn. Með þessari sýningu munu samtímalistamenn koma með fleiri myndlistarverk inn í safnið, minnka bilið milli áhorfanda og listaverks og eyna að draga enn frekar fram kosti safnsins sem sýningarrýmis fyrir myndlistarverk.

Tilgangur verkefnisins er þó líka að kafa í söguna og í umhverfi þar sem sköpun blómstrar, eins og hjá hjónunum á Gljúfrasteini. Listafólkið mun velta fyrir sér þeim heimi sem þau bjuggu til í kringum sig, skáldverkunum og listaverkunum sem þau sköpuðu þar, en einnig skoða þau áhrif sem umhverfið hefur óneitanlega haft á þau.

Berglind Erna Tryggvadóttir og Auður Lóa Guðnadóttir stýra sýningunni í samstarfi við Guðnýju Dóru Gestsdóttur safnstjóra.
Þátttakandi listamenn eru Arna Óttarsdóttir, Alexandra Mjöll Young, Auður Lóa Guðnadóttir, Berglind Erna Tryggvadóttir, Jóna
Hlíf Halldórsdóttir, Kata Jóhannesdóttir, Kristinn G. Harðarson, Lukas Bury og Weronika Balcerak, Ragnar Kjartansson, Sigrún
Hlín Sigurðardóttir, Sólbjört Vera Ómarsdóttir, Starkaður Sigurðarson, Una Björg Magnúsdóttir og Unnar Örn Auðarson.