Bragi Árnason og Strengir - Ný lög í sígildum anda
11/08 2026Á stofutónleikum sunnudaginn 16. ágúst stíga á stokk Bragi Árnason og hljómsveit hans Strengir. Flutt verða frumsamin lög ásamt völdum ábreiðum.
Bragi hefur um árabil fengist við tónlist og sviðslistir, meðal annars við gerð og uppfærslu söngleikja. Lagasmíðar hans sækja innblástur í fjölbreyttar tónlistarhefðir, allt frá söngleikjatónlist og dixieland yfir í sígild popplög sjöunda áratugarins. Úr verður persónulegur tónlistarheimur þar sem grípandi laglínur, frásagnargleði og hlýr hljómur fara saman. Þótt lögin séu samin á 21. öldinni bera þau með sér yfirbragð sígildrar dægurtónlistar.
Með Braga leikur þjóðlagapopphljómsveitin Strengir, sem hefur komið fram víða, meðal annars á Sumarhátíð í Flatey og Jólaþorpinu í Hafnarfirði. Hljómsveitin leggur lögunum til hlýjan og líflegan hljóm og skapar með Braga notalega tónleikastund þar sem ný tónlist og kunnugleg lög mætast í anda stofutónleikahefðar Gljúfrasteins.
Miðar eru afgreiddir á tónleikadaginn í afgreiðslu safnsins og er miðaverðið 3900 kr.
Hér eru upplýsingar um alla stofutónleika Gljúfrasteins 2026
Gestum er bent á að hægt er að leggja bílum við Jónstótt við Gljúfrastein.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.