Alþjóðlegi safnadagurinn

18/05 2025

Í tilefni Alþjóðlega safnadagsins verður frítt inn á Gljúfrastein, sunnudaginnn 18. maí.

Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn 18. maí ár hvert en ICOM, Alþjóðaráð safna, hefur staðið fyrir deginum síðan árið 1977. Framkvæmd dagsins er mikilvægt samstarfsverkefni Íslandsdeildar ICOM og FÍSOS, sem nýtur öflugs stuðnings frá safnaráði og söfnunum í landinu. Yfirskrift safnadagsins í ár er: Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum. Í heimi sem tekur örum breytingum gegna söfn lykilhlutverki sem stofnanir sem efla þollyndi, nýsköpun og inngildingu. Þau eru lifandi vettvangur félagslegrar framþróunar og stuðla jafnframt að sjálfbærni á heimsvísu. Þá gegna söfn veigamiklu hlutverki í að styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.