Sónata eftir Chopin á Gljúfrasteini

10/08 2011

Kristján Karl Bragason, píanó

Næstkomandi sunnudag, þann 14. ágúst, geta aðdáendur Frédéric Chopin glaðst því Kristján Karl Bragason mun koma fram á stofutónleikum á Gljúfrasteini og flytja Sónötu nr. 3 í h-moll op. 58 eftir tónskáldið. Tónleikarnir hefjast kl. 16.00 og aðgangseyrir er 1000 krónur.

 

Kristján Karl Bragason hóf píanónám hjá Lidiu Kolosowska í Tónlistarskólanum á Dalvík og nam síðar hjá prófessor Marek Podhajski við Tónlistarskólann á Akureyri, þaðan sem hann útskrifaðist árið 2002. Þá lærði hann um þriggja ára skeið hjá Halldóri Haraldssyni við Tónlistarskólann í Reykjavík. Sumarið 2005 var Kristján skiptinemi við Staatliche Hochschule für Musik í Stuttgart hjá prófessor Shoshana Rudiakov. Þá lærði hann í fjögur ár í Frakklandi, hjá Eddu Erlendsdóttur í CNR de Versailles og Pascal Amoyel í CRR de Rueil-Malmaison. Haustið 2009 hóf Kristján mastersnám í Hollandi hjá Katia Veekmans-Cieszkowski og lýkur í haust prófum frá Conservatorium Maastricht. Kristján hefur sótt námskeið og einkatíma hjá ýmsum píanóleikurum, m.a. Peter Máté, Diane Andersen, Jean-Claude Pennetier, Abdel Rahman El-Bacha og Thérèse Dussaut.

Kristján hlaut árið 2000 fyrstu verðlaun í framhaldsflokki í fyrstu píanókeppni Íslandsdeildar EPTA. Árin 2008 og 2010 var hann einn af styrkþegum Minningarsjóðs um Birgi Einarson. Haustið 2008 flutti hann ásamt Sinfóníuhljómsveit unga fólksins píanókonsert nr. 1 eftir Brahms og í mars 2010 hélt hann einleikstónleika í TÍBRÁ í Salnum í Kópavogi. Kristján Karl er einn stofnenda og skipuleggjenda Tónlistarhátíðarinnar BERGMÁL á Dalvík.