Samtal um skáld­skap og mynd­list: Joan Jonas og Ragnar Kjart­ansson

25.08 2025

Í tilefni af sýningu Ragnars Kjartanssonar á verkinu Heimsljós í Listasafni Reykjavíkur og 70 ára Nóbelsafmæli Halldórs Laxness, bjóða Listasafn Reykjavíkur og Gljúfrasteinn til einstaks viðburðar þar sem myndlist og bókmenntir mætast. Viðburðurinn fer fram 11. september kl. 17 í Listasafni Reykjavíkur.

Listamennirnir Joan Jonas og Ragnar Kjartansson ræða við Markús Þór Andrésson, safnstjóra Listasafns Reykjavíkur, um það hvernig skáldverk Halldórs Laxness hafa veitt þeim innblástur í eigin listsköpun. Joan hefur sótt í Kristnihald undir Jökli og Ragnar í Heimsljós. Í samtalinu verður velt upp spurningum um framhaldslíf bókmennta í myndlist: Hvað í verkum Laxness býður upp á slíka umbreytingu?

Um þátttakendur:

Joan Jonas (f. 1936) er bandarísk myndlistarkona og frumkvöðull í gjörninga- og vídeólist. Hún hefur haft djúpstæð áhrif á þróun samtímalistar allt frá sjöunda áratugnum og er þekkt fyrir verk sem blanda saman hreyfingu, hljóði, texta og mynd. Hún hefur sýnt víða um heim, m.a. á Tate Modern, MoMA og Feneyjatvíæringnum, þar sem hún var fulltrúi Bandaríkjanna árið 2015.

Ragnar Kjartansson (f. 1976) er íslenskur myndlistarmaður sem vinnur með gjörninga, vídeó, málverk og tónlist. Verk hans einkennast af endurtekningu, húmor og tilfinningalegri dýpt, og vísa gjarnan í leiklist, tónlistarsögu og menningararf. Hann hefur sýnt á helstu listasöfnum heims og var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2009.

Halldór Laxness (1902–1998) er einn áhrifamesti rithöfundur Íslands og hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955. Með verkum á borð við Sjálfstætt fólk, Heimsljós og Íslandsklukkuna endurnýjaði hann íslenska sagnalist með djúpri samfélagslegri og tilvistarlegri umfjöllun sem hefur haft áhrif langt út fyrir landsteinana.

Viðburðurinn, sem er öllum opinn, er hluti af dagskrá sýningarinnar Heimsljós í Hafnarhúsi og liður í viðburðaröð í tengslum við 70 ára afmæli Nóbelsverðlauna Halldórs Laxness. Samstarfsaðilar eru Gljúfrasteinn, Listasafn Reykjavíkur, Sendiráð Svíþjóðar á Íslandi, Forlagið, RLA og Hugvísindadeild Háskóla Íslands

Verkefnið hlaut styrk úr safnasjóði

Joan Jonas

Ljósmynd: Maximillian Geuter, f.h. Joan Jonas and Gladstone.