Salka Valka í Landnámssetrinu í Borgarnesi
10.02 2026
Nýlega var leikverkið Salka – ástin og dauðinn frumsýnt í Landnámsssetrinu í Borgarnesi en um er að ræða einleik sem saminn er og fluttur af Unni Ösp Stefánsdóttur. Leikgerðina byggir hún á fyrri hluta Sölku Völku eftir Halldór Laxness, sem kom fyrst út árið 1931 undir nafninu Þú vínviður hreini. Silja Aðalsteinsdóttir hefur ritað lofsamlegan dóm um sýninguna sem hægt er að lesa í heild á vef Tímarits Máls og menningar: „Í rauninni væri einfaldast að segja að þessi flutningur sé kraftaverk, svo einstakur er hann í innlifun leikkonunnar, einlægni hennar og djúpum skilningi á verkinu og persónum þess.“
Þegar Laxness dvaldi í Hollywood fyrir rétt tæpri öld skrifaði hann drög að tveimur kvikmyndahandritum. Annað þeirra varð síðar að Sölku Völku. Hér má finna umfjöllun um handritið og tilurð þess, og lesa texta handritsins á bæði íslensku og ensku.