Opið alla daga vikunnar á Gljúfrasteini í sumar

31/05 2019

Sumar á Gljúfrasteini

Frá og með laugardeginum 1. júní er opið á Gljúfrasteini alla daga frá 9.00 - 17.00
Á sunnudögum klukkan 16.00 eru stofutónleikar í húsi skáldsins og þá er hætt að hleypa inn í hljóðleiðsögn klukkan 15.00.  
Stofutónleikaröð 2019 

Garðurinn umhverfis húsið er einnig opinn almenningi og hentugar gönguleiðir eru til dæmis upp með ánni í átt að eyðibýlinu Bringum og niður með Köldukvísl í áttina að Guddulaug.

Kort af svæðinu