Breyttur opnunartími í nóvember

31/10 2015

Gljúfrasteinn að vetrarlagi.

Í dag, 31. október, er síðasta helgaropnun Gljúfrasteins á árinu en lokað verður um helgar yfir vetrarmánuðina eða frá og með 1. nóvember 2015 til 1. mars árið 2016.

Safnið er opið í dag frá kl. 10-16 og taka starfsmenn Gljúfrasteins eins og ávallt vel á móti gestum.Ýmislegt má taka sér fyrir hendur í Mosfellsdal og eru starfsmenn safnsins fúsir til þess að leiðsegja þeim sem til að mynda vilja ganga um dalinn.

Á aðventunni verður sem fyrr boðið upp á upplestur úr nýútkomum verkum á Gljúfrasteini, þessir viðburðir verða nánar auglýstir síðar.