Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness

20.02 2026

Nýverið spratt upp bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness í þættinum Víðsjá á Rúv. Markmiðið er að lesa verk Halldórs Laxness í tímaröð þar sem hver bók fær einn mánuð. 

Umsjón með klúbbnum hafa þeir Tómas Ævar Ólafsson og Snorri Rafn Hallson og fara umræður fram í hópi á Facebook þar sem lestrarhestar geta verið með. Einnig verða viðtöl í hverjum mánuði við skemtilega viðmælendur í Víðsjá. Fyrsta lestri er lokið og fór þátturinn í loftið síðastliðinn miðvikudag, þar sem rætt var við Vilhjálm Neto, leikara og Halldór Guðmundsson, rithöfund, sem gaf út ævisögu um skáldið árið 2004. Viðfangsefnið var fyrsta bók Laxness, Barn náttúrunnar, sem hann skrifaði einungis 16 ára gamall, en kom út árið 1919, þegar hann var 17 ára.

Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Undir Helgahnúk en fjallað verður um hana í Víðsjá 18. Mars. Dagskráin fyrir vorið er svohljóðandi:

Barn náttúrunnar - 18. febrúar

Undir Helgahnúk - 18. mars

Vefarinn mikli frá Kasmír - 15. apríl

Salka Valka - 13. maí

Úngfrúin góða og húsið - 10. júní

Ef allt gengur að óskum verður þráðurinn svo tekinn aftr upp í haust og eftirfarandi verk lesin fram að jólum; Sjálfstætt fólk, Heimsljós og Íslandsklukkan - hugsanlega með lestrarhléum inni á milli.

Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Halldórs.

Við fögnum þessu framtaki, hvetjum ykkur eindregið til að gerast meðlimir í klúbbnum og lesa alla vega eina skáldsögu Halldórs, ef ekki allar!

Njótið lestursins!