Maxímús Músíkús og félagar á Gljúfrasteini

Maxímús Músíkús og Hallfríður Ólafsdóttir

Maxímús Músíkús kom með höfundi sínum, Hallfríði Ólafsdóttur að hitta börn á öllum aldri í stofunni á Gljúfrasteini. Þar flettu þau bókunum um Maxa, sýna myndir, lesa og leika tónlist. Einnig kom leynigestur í heimsókn.

Hallfríður Ólafsdóttir er flautuleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands en hefur einnig unnið verkefnið um músíkölsku músina, hann Maxa, síðastliðin átta ár. Fyrstu Maxatónleikarnir voru haldnir vorið 2008 og um leið kom út fyrsta bókin um hann  ásamt geisladiski. Nú eru komin út þrjú ævintýri um Maxímús Músíkús og fjórða bókin er í vinnslu.

Maxi á heima í Hörpu en bregður sér stundum af bæ og ætlar að koma í Mosfellsdalinn til þess að dansa við lagið sitt, Lagið hans Maxa, í stofu Nóbelsskáldsins, Halldórs Kiljans Laxness, og þykir það ekki lítill heiður!