Gunnar Þorri Pétursson hlaut íslensku þýðendaverðlaunin 2022

21/02 2022

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands afhenti Gunnari Þorra Péturssyni íslensku þýðingaverðlaunin 2022 við hátíðlega athöfn á Gljúfrasteini í laugardaginn 19. febrúar. Gunnar Þorri hlaut verðlaunin fyrir þýðingu sina á Tsjernobyl-bænininni, framtíðarannáll eftir Svetlana Aleksíevítsj. Angústúra gefur út.  Að íslensku þýðingaverðlaununum standa, Bandalag þýðenda og túlka, Rithöfundasamband Íslands og Félag íslenskra bókaútgefenda. Þau voru sett á stofn til að minna á mikilvægi þýðinga fyrir íslenska tungu og menningu og til að heiðra þýðendur sem sinna því vandasama verki að færa okkur vandaðar erlendar bókmenntir á móðurmáli okkar.

Í dómnefnd sátu Guðrún H. Tulinius (formaður), Elísabet Gunnarsdóttir og Þórður Helgason.

Umsögn dómnefndar er eftirfarandi:

Verkið samanstendur fyrst og fremst af frásögnum fórnarlamba slyssins í Tsjernobyl sem hingað til hefur of lítill gaumur verið gefinn, en þessi aðferð er í anda annarra verka höfundarins, Svetlönu Aleksíevítsj, sem áður hefur skrifað um sovéskar konur sem börðust í síðari heimsstyrjöldinni, frásagnir barna úr því stríði og hernaðarbrölt Sovétmanna í Afganistan. Þeir sem segja sögu sína hér eru af ýmsum meiði, fræðimenn, eiginkonur þeirra sem verst urðu úti, foreldrar sem horfa á börn sín veikjast og deyja, flóttafólk sem sneri aftur, fólk sem flutt var með valdi af hættusvæðinu, fólk sem vildi ekki yfirgefa jarðir og búfénað, börn, hermenn sem sáu um hreinsun og svo „hetjurnar”.

Þetta er ekki predikun, en af frásögnunum sést að erindið er brýnt og að ekki má gleyma atburðunum í Tsjernobyl, því áhrifa þeirra gætir enn og þeir munu hafa áhrif um ókomna tíð. Verkið segir skelfilega sögu, ekki einungis um atburðinn sjálfan, heldur og um það sem fylgdi í kjölfarið og ekki síst um vald og valdsmenn sem bregðast þjóð sinni með lygum og þöggun þannig að öll viðbrögð fólksins verða ómarkviss og tilviljanakennd.

„Sagnfræði sem lendir á milli þilja, ” eins og höfundur verksins orðar það. Undirtitill verksins „framtíðarannáll”, vekur skelk og ekki síður einkunnarorðin, „Við erum úr lofti en ekki úr jörðu komin”. Það boðar ekki gott að vera úr loftinu sem Tsjernobyl andaði yfir okkur.

Hér skilar Gunnar Þorri góðu verki. Hann þarf að setja sig í spor allra þeirra ólíku aðila sem hér segja sögu sína og túlka stöðu þeirra og tilfinningar í gegnum málfarið. Hann gerir það af mikilli þekkingu og góðu innsæi sem sést best af því hvernig hann miðlar röddum verksins og af blæ orðanna skynjum við ólíkar persónur. Hér er ekki um oftúlkun að ræða, heldur raunsæja lýsingu án nokkurrar yfirborðsmennsku. Verkið sýnist auðvelt í framkvæmd, en mikla kunnáttu þarf til að þekkja slík blæbrigði og mikið þolgæði þegar lýst er svo hrikalegum atburðum. Gunnar Þorri vinnur verk sitt af einurð.

Aðrir tilnefndir þýðendur voru:

Ásdís R. Magnúsdóttir, fyrir þýðingu sína Fríða og dýrið, franskar sögur og ævintýri fyrri alda. Ýmsir höfundar. Háskólaútgáfan gefur út.

Hallgrímur Helgason, fyrir þýðingu sína Hjartað mitt. Höfundar Jo Witek og Christine Roussey. Drápa gefur út.

Jóhann Hauksson, fyrir þýðingu sína Rannsóknir í heimspeki. Höfundur Ludwig Wittgenstein. Háskólaútgáfan gefur út.

Jón St. Kristjánsson, fyrir þýðingu sína Glæstar vonir. Höfundur Charles Dickens. Mál og menning gefur út.

Jón Hallur Stefánsson, fyrir þýðingu sína Ef við værum á venjulegum stað. Höfundur Juan Pablo Villalobos. Angústúra gefur út.

Sólveig Sif Hreiðarsdóttir, fyrir þýðingu sína Á hjara veraldar. Höfundur Geraldine McCaughrean. Kver gefur út.