Sýningin ,,Frjáls í mínu lífi” um líf og listir Auðar Laxness

03/08 2018

Nú eru 100 ár liðin frá fæðingu Auðar Laxness og af því tilefni hefur verið opnuð sýningin ,,Frjáls í mínu lífi" á Gljúfrasteini þar sem hönnun og handverk Auðar eru í öndvegi.
Leiðsögn um sýninguna fer fram á hverjum degi kl. 13:30 og er aðgangseyrir 900 kr. en 700 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn.
Bóka þarf leiðsögn fyrir sýninguna fyrirfram í síma 586 8066 eða í gegnum netfangið gljufrasteinn@gljufrasteinn.is. Hámarksfjöldi í hóp er 20 manns.