Leiðin til Gljúfrasteins

Skoðunarferðir um húsið eru allan daginn. Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður nóbelsskáldsins Halldórs Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar aldar skeið og gefst gestum kostur á að skoða Gljúfrastein sem nú er safn þar sem heimili og vinnustaður Halldórs eru látin haldast óbreytt.

Á veturna (1. september - 31. maí)
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10.00-17.00.

Á sumrin (1. júní - 31. ágúst)
Opið alla daga frá kl. 9.00 - 17.00.

Aðgangseyrir:
Fullorðnir kr. 800,-
Eldri borgarar og öryrkjar kr. 500,-
Börn til 18 ára ókeypis


Boðið er upp á hljóðleiðsögn um húsið sem er á íslensku, ensku, dönsku, þýsku eða sænsku þar má m.a. heyra raddir Auðar og Halldórs Laxness. Ennfremur er hægt að óska eftir leiðsögn fyrirfram á öðrum tungumálum með starfsmönnum hússins.

Í móttökuhúsinu er hægt að bóka í skoðunarferðir en gestum er ráðlagt að bóka fyrirfram með því að senda tölvupóst á gljufrasteinn@gljufrasteinn.is eða hringja í síma 586-8066.

OPNUNARTÍMI

Opið í sumar

alla daga frá kl. 9.00 - 17.00.

Hvaða persóna?

Taktu prófið og sjáðu hvort þú líkist Bjarti, Sölku Völku eða annarri þekktri persónu úr verkum skáldsins.