Umbra Ensemble - heillandi fegurð og frumleiki

Umbra Ensemble spila á næstu stofutónleikum Gljúfrasteins þann 24. júní og flytja nýja og forna tónlist í eigin útsetningum.

Alexandra Kjeld, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Lilja Dögg Gunnarsdóttir og Arngerður María Árnadóttir

 

Á næstu stofutónleikum Gljúfrasteins þann 24. júní flytur Umbra Ensemble nýja og forna tónlist í eigin útsetningum.

Umbra Ensemble var stofnað haustið 2014 og er skipað fjórum atvinnutónlistarkonum; Alexöndru Kjeld, Arngerði Maríu Árnadóttur, Guðbjörgu Hlín Guðmundsdóttur  og Lilju Dögg Gunnarsdóttur. Hópurinn hefur frá upphafi unnið að því að skapa öðruvísi stemningu á tónleikum, ná til ólíkra áhorfenda og kanna ný rými. Hvað tónlistarflutninginn sjálfan varðar er áhersla lögð á skapa eigin útsetningar á fornu tónefni og vinna markvisst með þann hljóðheim sem hlýst af samsetningu upprunahljóðfæra og samsöngs. Þær hafa skapað sinn eigin hljóðheim sem hefur fornan blæ og spila þær bæði nýja og gamla tónlist í eigin útsetningum.

Umbra leiðir áheyrendur inn í dulúð fornrar tónlistar frá  ýmsum löndum, Íslandi, Finnlandi, Englandi, Þýskalandi, Spáni og Katalóníu. Draugar, vosbúð, kuldi og myrkur hefur verið vinsælt yrkisefni íslenskra þjóðlaga en það er e.t.v í stíl við þjóðarsálina og dvöl á einangraðri eyju. Myrkrið í evrópskri miðaldatónlist birtist fremur í ofuráherslu á mannlega þjáningu, syndina og breyskleika mannsins. Í allri þessari tónlist er samt heillandi fegurð og frumleiki sem á erindi við nútímann. Allar útsetningar á tónleikunum eru eftir Umbru.

Stofutónleikarnir eru haldnir hvern sunnudag til 26. ágúst og hefjast þeir kl. 16:00. Miðar eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs og kosta 2500 kr. Ókeypis er fyrir börn á leikskólaaldri.

Dagskrá stofutónleikanna í heild sinni.

Til baka í viðburði