Tindatríóið og Arnhildur Valgarðsdóttir á fyrstu stofutónleikum sumarsins

Mosfellingarnir í Tindatríóinu, feðgarnir Bjarni Atlason, Guðlaugur Atlason, Atli Guðlaugsson ásamt Arnhildi Valgarðsdóttur píanóleikara fluttu íslensk lög af fjörugri gerðinni á fyrstu stofutónleikum sumarsins.

Tindatríóið og Arnhildur Valgarðsdóttir

Tindatríóið er sönghópur sem samanstendur af þeim Atla Guðlaugssyni, Bjarna Atlasyni og Guðlaugi Atlasyni. Tríóið hóf samstarf í nóvember 2003 og hefur komið víða fram síðan m.a. ásamt Sveini Arnari Sæmundssyni organista og píanóleikara en að þessu sinni leikur Arnhildur Valgarðsdóttir með tríóinu.

Á efnisskrá tónleikanna voru íslensk lög, m.a. eftir Sigvalda Kaldalóns, Sigfús Halldórsson, Jón Ásgeirsson og Braga Valdimar Skúlason. Ljóðin eru m.a. eftir Halldór Laxness, Jón frá Ljárskógum, Stephan G. Stephensson og Valdimar Hólm Hallstað.

Til baka í viðburði