Snorri Helgason á Gljúfrasteini

Snorri Helgason, tónlistarmaður.

28. júlí kom Snorri Helgason fram á Gljúfrasteini. Snorri flutti frumsamda tónlist af sínum tveimur útgefnu hljómplötum, I'm Gonna Put My Name On Your Door (2009) og Winter Sun (2011) í bland við nýrra efni af væntanlegri þriðju hljómplötu sinni, Autumn Skies sem gefin verður út með haustinu. Einnig mun Snorri flytja útsetningar sínar af bandarískum og breskum þjóðlögum.

Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur á undanförnum árum skapað sér gott orð í tónlistarheiminum bæði innanlands sem utan. Tónlist Snorra er nokkurs konar þjóðlagapoppbræðingur þar sem sterkar melódíur og kassagítarinn eru í forgrunni. Frekari upplýsingar um Snorra og tónlist hans má finna á vefsíðu hans, snorrihelgason.com.