Sýnishorn af komandi tónlistarsumri

Það styttist í fyrstu stofutónleika sumarsins á Gljúfrasteini. Tónleikaröðin verður kynnt mánudaginn 22.júní en fyrstu tónleikarnir verða sunnudaginn 28.júní og svo hvern sunnudag til 30.ágúst.

 Hér má sjá sýnishorn af komandi tónleikasumri en það eru þau Hallveig Rúnarsdóttir og Árni Heimir Ingólfsson sem flytja lagið Les Chemins de l’amour eftir Francis Poulenc. Hallveig og Árni Heimir koma fram á stofutónleikum á Gljúfrasteini sunnudaginn 16. ágúst og ætla þá að flytja lög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Halldórs Laxness auk laga eftir Stephen Sondheim og Francis Poulenc.

Hlökkum til að sjá ykkur í sumar.

Til baka í viðburði