Kirkjukór Lágafellskirkju heldur afmælistónleika á Gljúfrasteini

Um þessar mundir fangar Kirkjukór Lágafellskirkju 70 ára starfsafmæli. Af því tilefni verður blásið til Laxness veislu að Gljúfrasteini sunnudaginn 28. október kl. 15:00.

Þar mun kórinn, ásamt Þórði Sigurðarsyni organista Mosfellssóknar, halda tónleika til heiðurs Halldóri Laxness. Flutt verða lög við ljóð skáldsins auk þess sem lesið verður upp úr völdum köflum úr verkum hans. Andi skáldsins mun án efa svífa yfir þetta sunnudags eftirmiðdegi í ókrýndri menningarmiðstöð Mosfellsdals.

Miðar eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs og kosta 1500 kr. Ókeypis er fyrir börn á leikskólaaldri.

Til baka í viðburði