Að vera kjur eða fara burt?

Á fæðingardegi Halldórs Laxness 23. apríl næstkomandi verður opnuð sýning í Landsbókasafni Íslands í tilefni aldarafmælis Barns náttúrunnar, fyrstu skáldsögu Halldórs. 

Forsíða sýningarskrárinnar

Sýningin ber heitið Að vera kjur eða fara burt? og er samstarfsverkefni Landsbókasafnsins, Gljúfrasteins og Forlagsins. Safnaráð og Vinafélag Gljúfrasteins styrkja verkefnið. Ólafur J. Engilbertsson er hönnuður sýningarinnar. Vegleg sýningarskrá verður gefin út en í henni eru greinar eftir fræðimenn og listafólk. Þar skrifar Haukur Ingvarsson um skáldsöguna Barn náttúrunnar, Halldór Guðmundsson skrifar um barnið Halldór Laxness sem var aðeins sextán ára þegar hann skrifaði söguna. Kristín Marja Baldursdóttir fjallar um myndlist á Íslandi árið 1919, Árni Heimir Ingólfsson um tónlist þess tíma og Sjón um kvikmyndir. Auður Jónsdóttir skrifar um fjölskylduna í Laxnesi og Unnar Örn um bókaútgáfu í aldarbyrjun.  Forlagið sá um hönnun sýningarskrár.

Til baka í viðburði