Viðrar vel til helgaropnunar

02/03 2018

Undir heiðum himni 

Þá er komið að því að Gljúfrasteinn verður á ný opinn gestum um helgar. Spáin fyrir fyrstu opnunarhelgi ársins er góð því gert er ráð fyrir heiðskíru veðri og vægu frosti á laugardag og sunnudag. Það er því tilvalið að heimsækja hús skáldsins og upplifa kyrrðina í dalnum.
Opið verður frá kl. 10:00-16:00 alla helgina.