Upplestur á degi íslenskrar tungu

12/11 2013

Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur þann 16. nóvember ár hvert, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar.

Dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur á Gljúfrasteini. Opið verður laugardaginn 16. nóv frá 10-17 og er aðgangur ókeypis.

Boðið verður upp á upplestur kl. 16 sem að þessu sinni verður helgaður börnum. Nemendur úr Lágafellsskóla sem tóku þátt í upplestrarkeppninni „Laxnessinn“  sem haldin er árlega á afmælisdegi Halldórs Laxness 23. apríl.  Þá munu nemendur úr Varmárskóla í Mosfellsbæ sem tóku þátt í Stóru upplestrarkeppninni lesa upp. Auk þeirra munu tveir barnabókarithöfundar koma fram. Það eru þau Kristín Helga Gunnarsdóttir, höfundur bókarinnar Mói Hrekkjusvín og Kjartan Yngvi Björnsson sem gefur út bókina Draumsverð núna fyrir jólin ásamt Snæbirni Brynjarssyni. Draumsverð er framhald af fyrri bók þeirra, Hrafnsauga, en fyrir hana hlutu þeir íslensku barnabókaverðlaunin árið 2012.

Dagskráin á Gljúfrasteini kl. 16:
Nemendur úr Varmárskóla
Anna Pálína Sigurðardóttir,
Amanda Lind Davíðsdóttir

Kristín Helga Gunnarsdóttir les úr bók sinni Mói Hrekkjusvín

Nemendur úr Lágafellsskóla
Sólveig Rósa Hugadóttir
Ástríður Magnúsdóttir
Rakel Ösp Gylfadóttir

Kjartan Yngvi Björnsson les úr bókinni Draumasverð.

Hér má sjá frétt frá afhendingu „Laxnessins“ í Lágafellsskóla

Hér má sjá fleiri viðburði á degi íslenskrar tungu