Lokað á Gljúfrasteini næstu daga

30/07 2020

Gljúfrasteinn að sumarlagi

Safnið á Gljúfrasteini verður lokað frá hádegi föstudaginn 31.júlí vegna hertra takmarkana sem settar hafa verið af yfirvöldum vegna útbreiðslu Covid-19.  Sóttvarnarlæknir hefur lagt til að gert verði hlé á starfsemi safna, skemmtistaða og annarra opinberra staða þar sem ekki er hægt að tryggja að bil milli fólks sé yfir tveir metrar.  Það á við um safnið á Gljúfrasteini. Aðgerðir stjórnvalda verða að óbreyttu í gildi til 13.ágúst næstkomandi.  Tónleikum sem vera áttu í stofunni á Gljúfrasteini sunnudaginn 2.ágúst og sunnudaginn 9.ágúst er því aflýst.  

Safnið verður þó áfram opið í netheimum og á heimasíðu safnsins, Instagram- og Facebooksíðum þess má finna ýmsan fróðleik um Halldór Laxness og verk hans. Einnig um Auði Laxness, húsið þeirra á Gljúfrasteini og safnið sjálft.  Á heimasíðunni er einnig hægt að skoða safnið í þrívídd, fara á milli herbergja í húsinu, skoða meðal annars listaverk, muni, bækur, húsgögn og hlusta um leið á Hamrahlíðakórinn syngja Hjá lygnri móðu, hinn undurfagra texta Halldórs Laxness úr Heimsljósi við lag Jóns Ásgeirssonar.  
Garðurinn umhverfis húsið er áfram opinn og í nágrenni Gljúfrasteins eru fallegar gönguleiðir, til dæmis upp með ánni Köldukvísl. 
Hér má sjá kort af gönguleiðum