Lokað á Gljúfrasteini

23/03 2020

Halldór nefndi húsið sitt Gljúfrastein eftir þessum steini sem stendur enn rétt við hlið hússins. 19 ára gamall skrifaði hann söguna “Steinninn minn helgi” sem fjallar um það hvernig honum birtist vitrun við Gljúfrastein, sjö ára gömlum.  ,,Lotníng og tilbeiðsla fóru um sál mína slíkri magnan að mér fanst á þeirri stundu sem ég væri alt, að ég væri sjálfur guð.”

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að takmarka samkomur enn frekar vegna hraðari útbreiðslu COVID-19 í samfélaginu frá og með 24. mars. Í ljósi þess lokar safnið þar til samkomubanni hefur verið aflétt eða breytt. Á opnum útisvæðum safna, t.d. í görðum þeirra, þurfa gestir að tryggja að nánd milli manna verði að lágmarki tveir metrar.

Dear guests: The Icelandic government has announced a ban on gatherings of 20 people or more, starting Tuesday 24 March. All museums will be closed for the duration of the ban. In accessible public spaces belonging to the museum, i.e. gardens, visitors must ensure that a distance of at least two (2) metres is maintained between individuals.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur með hækkandi sól.

We look forward to seeing you at another time