Laxnesshátíðin

18/04 2012

Halldór Laxness með nokkrum samstarfsmönnum og aðstandendum kvikmyndarinnar Sölku Völku. Í fangi skáldsins situr dóttir hans, Sigríður Halldórsdóttir

Í ár eru liðin 110 ár frá fæðingu Halldórs Laxness en Halldór var fæddur þann 23. apríl 1902. Í tilefni afmælisins eru ýmsir viðburðir á döfinni, þar á meðal kvikmyndahátíðin Laxness í lifandi myndum í Bíó Paradís, sýningin Bernska skálds í byrjun aldar á Landsbókasafni, gönguferðir og tónleikar. Næstkomandi laugardag byrjar fjörið en þá mun Pétur Ármannsson leiða borgargönguna Í fótspor skáldsins. Hér fyrir neðan má sjá dagskrána í heild sinni en einnig er hægt að lesa nánar um einstaka viðburði hér á heimasíðunni.

21. apríl 2012 Borgargangan Í fótspor skáldsins
Gönguferðin hefst við Laugaveg 32 kl. 11 og er í samvinnu við Vinafélag Gljúfrasteins. Leiðsögumaður er Pétur Ármannsson arkitekt.

22. apríl 2012 Úr ljóðum Laxness
Kammerkór Norðurlands undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar verður í Hörpu með tónleika kl. 20.00.

23. apríl 2012 Bernska skálds í byrjun aldar
Formleg opnun á sýningu í Þjóðarbókhlöðunni sem stendur fram í september.

23. – 28. apríl Laxness í lifandi myndum
Laxnesskvikmyndavika í samvinnu við Bíó Paradís og RÚV. 

1. maí Útgáfutónleikar Tómasar R. Einarssonar
kl. 16.00 og 18.00 á Gljúfrasteini. Útgáfutónleikar á diski Tómasar R og félaga sem heitir Laxness.

6. maí Gönguferð í Mosfellsdalnum
Ferðafélag Íslands og Vinafélag Gljúfrasteins standa fyrir gönguferð í Mosfellsdal sem hefst kl. 10.