Kristnihald undir jökli sýnd á RÚV

18/12 2015

Úr kvikmyndinni Kristnihald undir Jökli.

Kvikmyndin Kristnihald undir jökli frá árinu 1989 verður sýnd á RÚV sunnudaginn 20. desember kl. 22:00.  Að sýningu lokinni er sýndur heimildarþáttur þar sem Halldór Laxness greinir frá skrifum Kristnihalds undir jökli, sýndar verða myndir frá tökustað myndarinnar og skyggnst á bakvið tjöldin.

Guðný Halldórsdóttir leikstýrði kvikmyndinni eftir samnefndri skáldsögu föðurs síns sem kom út árið 1968. Sagan greinir frá umboðsmanni biskups, Umba, sem sendur er undir Jökul til að kanna stöðu mála í söfnuði einum á Snæfellsnesi. Tilefni fararinnar er að séra Jón Prímus er talinn vera hættur að sinna embættisverkum og hjúskaparstaða hans heldur óljós. Umbi á að setja saman skýrslu um ferð sína en skýrslugerðin verður snúnari eftir því sem á líður.

Kvikmyndafélagið Umbi framleiddi myndina í savinnu við SDR Stuttgart.

Helstu leikarar eru Baldvin Halldórsson, Sigurður Sigurjónsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Helgi Skúlason, Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Egill Ólafsson og Rúrik Haraldsson.

Enn er hægt að horfa á Atómstöðina í Sarpinum hjá RÚV með því að smella hér: Atómstöðin