Gljúfrasteinn opinn á sunnudaginn 1. mars

26/02 2015

Halldór og heimilishundur á Gljúfrasteini árið 1950.

Nú er sólin farin að hækka á lofti og frá og með næsta sunnudegi, 1. mars er opið aftur um helgar á Gljúfrasteini. Safnið verður opið frá kl. 10:00-16:00 alla daga nema mánudaga frá og með 1. mars.

Það er tilvalið að fá sér göngu í Mosfellsdalnum. Í nágrenninu eru stikaðar gönguleiðir og fræðsluskilti en nánari upplýsingar má nálgast á safninu eða þar til gerðu göngukorti .

Hægt er að feta slóð skáldsins um dalinn, ganga upp með Köldukvíslinni eða fara í lengri göngu til dæmis upp á Grímannsfell, að Helgufossi eða í átt að Mosfellskirkju.

Starfsmenn Gljúfrasteins leiðbeina gestum fúslega um gönguleiðir og aðra afþreyingu í Mosfellsdalnum.