Ferðast á slóðum bókmennta

03/09 2013

Danskar og austur-evrópskar þýðingar sem búið er að flokka, ásamt öllum öðrum bókum í vinnustofu skáldsins.

Samstarfsnet norrænna bókmenntasafna efnir til málþings 11. september í Iðnó í samstarfi við Bókmenntahátíð og Reykjavík bókmenntaborg UNESCO.

Málþingið er fyrsti hluti þriggja daga ráðstefnu norrænna bókmenntasafna og er opið öllum sem hafa áhuga á hvernig bókmenntir og ferðaþjónusta tengjast. Það fer fram á ensku og hefur yfirskriftina Literary Routes and Roots.
Opnunarerindið flytur Hans Christian Andersen, prófessor í markaðsfræðum ferðamála og ferðaþjónustustjórnun við háskólann í Northumbria í Englandi og er titill þess: „Destinations and attractions: when literature moves people“.

Málþingið fer fram í Iðnó og hefst kl. 9.00 með opnunarávarpi mennta- og menningarmálaráðherra. Því lýkur síðan með pallborðsumræðum um hádegisbil þar sem gestum gefst kostur á að spyrja spurninga.Í erindum verður fjallað um aðdráttarafl bókmennta á ferðamenn, allt frá Íslendingasögum til Astrid Lindgren.

Þátttökugjald er kr. 5.000 (50% afsláttur fyrir háskólanema) og skal greiðast fyrirfram. Það má millifæra á reikning 0101-26-4212, kt. 421299-3079, skýring „littmus“. Skráning skal fara fram fyrir 8. september með tölvupósti til gestamottakan@gestamottakan.is.

DAGSKRÁ MÁLÞINGSINS:

MÁLÞING UM BÓKMENNTIR OG FERÐAÞJÓNUSTU

(fer fram á ensku og öll erindi flutt á ensku)

Miðvikudaginn 11. september kl. 8.30-12.30 í Iðnó, Vonarstræti 3, Reykjavík

9.00 Opnunarávarp Illugi Gunnarsson, ráðherra mennta- og menningarmála.

9.10 Opnunarerindi: „Destinations and attractions: when literature moves people“

Dr. Hans Christian Andersen, prófessor í markaðsfræðum ferðamála og ferðaþjónustustjórnun við háskólann í Northumbria í Englandi

 

10.00 Erindi (Mikilvægi bókmenntaslóða og bókmenntavísana í menningarferðaþjónustu)

• „Saga trails of Iceland“Rögnvaldur Guðmundsson, stjórnarformaður Samtaka um söguferðaþjónustu.

• „Reykjavík a UNESCO city of literature“:  Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.

10.30 Kaffihlé

10.45 Erindum framhaldið

• „Astrid Lindgren's books and tourism in Vimmerby“Kjell-Åke Hansson, framkvæmdastjóri Näs, menningarsetursins Astrid Lindgren í Vimmerby, Svíþjóð.

• „HC Andersen and tourism“: Johs. Nørregaard Frandsen, prófessor og forstöðumaður Hans Christian Andersen safnsins í Óðinsvéum, Danmörk.

• „To build a town on books“Solveig Røvik, Bókabænum Skagerrak í Noregi.

11.30 Pallborðsumræður

12.15  Málþingslok