1.12.2009 | 17:07

Jón Karl, Jón Kalman, Gyrðir og Pétur næsta sunnudag


Það eru þeir Jón Karl Helgason, Jón Kalman Stefánsson, Gyrðir Elíasson og Pétur Gunnarsson sem ætla að lesa úr verkum sínum í stofunni á Gljúfrasteini næsta sunnudag. Efnið er fjölbreytt: ævisögur, ljóð, smásögur og skáldsaga.

Sunnudagurinn 6. desember
Jón Karl Helgason – Mynd af Ragnari í Smára             
Jón Kalman Stefánsson – Harmur englanna
Gyrðir Elíasson – Milli trjánna / Nokkur almenn orð um kulnun sólar
Pétur Gunnarsson – ÞÞ - Í forheimskunarlandi


Að venju er aðgangur ókeypis og verður tekið hlýlega á móti gestum. Upplestrarnir hefjast stundvíslega kl. 16:00.