Sýning á verkum Svavars Guðnasonar
Úr vinnuherbergi Halldórs Laxness: Málverkið "Sumar" eftir Svavar Guðnason
Á Listasafni Íslands stendur nú yfir yfirlitssýning á verkum Svavars Guðnasonar (1909-1988) sem er meðal þekktustu listmálara Íslands.
Á sýningunni eru verk úr eigu Listasafns Íslands, í einkaeign, úr dánarbúi listamannsins og frá ýmsum stofnunum. Sýningin varpar ljósi á þróun Svavars frá miðjum fjórða áratug liðinnar aldar til þess níunda. Meginmarkmið með sýningunni á list Svavars er að kynna hana fyrir þeim kynslóðum sem fóru á mis við listamanninn í lifanda lífi en þekkja til hans af orðspori. Með ferskleik sínum og splundrandi krafti náði Svavar að heilla langtum fleiri kynslóðir Íslendinga en samferðamenn sína eina.
Svavar Guðnason og Halldór Laxness voru vinir og eru mörg verk Svavars hér á Gljúfrasteini. Tvö verka hans sem jafnan prýða Gljúfrastein eru nú á sýningunni á Listasafni Íslands.
Guðný Dóra Gestsdóttir forstöðumaður Gljúfrasteins og Sigríður Melrós Ólafsdóttir, deildarstjóri sýningadeildar munu fjalla um vináttu og verk Halldórs Laxness og Svavars Guðnasonar næstkomandi sunnudag, 8. nóvember, klukkan 14 á Listasafni Íslands.