Amadé og eplatré - síðustu stofutónleikar sumarsins á Gljúfrasteini
Anna Guðný Guðmundsdóttir og Einar Jóhannesson
Klarínettuleikarinn Einar Jóhannesson og píanóleikarinn Anna Guðný Guðmundsdóttir munu slá botninn í stofutónleikaröð Gljúfrasteins í sumar.
Á efnisskránni verða verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Gerald
Finzi. Einar mun einnig flytja nýtt einleiksverk eftir Áskel Másson.
Tónleikarnir hefjast kl 16:00. Aðgangseyrir er 500 krónur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Einar Jóhannessoon lærði hjá Gunnari Egilson í Tónlistarskólanum í Reykjavík og lauk þaðan einleikaraprófi árið 1969. Þaðan hélt Einar til London og nam við The Royal College of Music hjá Bernard Walton og John McCaw og vann þar til Frederick Thurston verðlaunanna. Árið 1979 hlaut hann Sonning verðlaunin fyrir unga norræna einleikara og hélt þá til frekara náms hjá Walter Boeykens í Frakklandi.
Einar hefur komið fram sem einleikari og hljóðritað fyrir fjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva í Evrópu, Asíu, Bandaríkjunum og Ástralíu. Hann hefur gegnt stöðu sólóklarínettuleikara við Sinfóníuhljómsveit Íslands frá 1980 og er stofnfélagi Blásarakvintetts Reykjavíkur. Einar er einnig félagi í miðaldasönghópnum Voces Thules.
Anna Guðný Guðmundsdóttir brautskráðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1979 og stundaði Post Graduate-nám við Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum með sérstaka áherslu á kammertónlist og meðleik með söng. Helstu kennarar hennar voru Stefán Edelstein í Barnamúsíkskólanum; Hermína S. Kristjánsson, Jón Nordal og Margrét Eiríksdóttir í Tónlistarskólanum í Reykjavík og James Gibb og Gordon Back í Guildhall School of Music and Drama. Hún hefur starfað á Íslandi í yfir aldarfjórðung við margvísleg störf píanistans, aðallega í samleik ýmiss konar en einnig í einleikshlutverki. Anna Guðný hefur verið píanóleikari Kammersveitar Reykjavíkur um langt árabil. Hún hefur leikið inn á um þrjátíu geisladiska og plötur í samvinnu við ýmsa listamenn. Samstarf hennar og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur sópransöngkonu, hefur staðið síðan á námsárunum í Lundúnum. Hún hefur komið fram á Listahátíð í Reykjavík og leikur reglulega innan raðar Tíbrár-tónleikanna í Salnum í Kópavogi.
Anna var bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2002. Hún kenndi við tónlistardeild Listaháskóla Íslands frá stofnun hennar 2001 til 2005, en það haust var hún ráðin píanóleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2004 sem flytjandi ársins og aftur árið 2009, en þá hlaut hún verðlaunin fyrir flutning sinn á verkinu “Tuttugu tillit til Jesúbarnsins” eftir Olivier Messiaen í september 2008.