Íslandsklukkan kallar
Tinna Gunnlaugsdóttir
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri og leikkona sér um Verk mánaðarins næsta sunnudag 29. mars kl. 16:00.
Ókeypis er á viðburðinn og allir velkomnir.
Til frekari lýsingar er best að gefa Tinnu orðið:
Það gerist stundum að tilteknar aðstæður verða til þess að kalla fram hugrenningatengsl og minningar. Við vitum ekki endilega hvers vegna þetta gerist eða þessi tilfinning hellist yfir okkur. Við vitum stundum ekki heldur hvort þetta eru endilega okkar eigin minningar sem sækja á, stundum hvarflar það að okkur að það sé jafnvel eitthvað sem við höfum lesið eða tileinkað okkur með öðrum hætti. Stundum er það líka þannig að við vitum upp á hár hvers vegna hugsun okkar leitar í ákveðnar áttir. Það er vegna þess að tíminn kallar á það, aðstæðurnar í stóra samhenginu eru með þeim hætti að við verðum að finna hliðstæður, við verðum að beita öllum meðulum til að reyna að sjá myndina, ekki bara yfirborðið, heldur líka kjarnann og þá um leið heildarmyndina. Þá leitum við gjarnan til stóru skáldanna, til hugsuðanna, til þeirra sem með einhverjum hætti hafa náð að setja hlutina í orð.
Íslandsklukkan hefur verið að sækja á mig að undanförnu.
Tinna
Dagskrá Verk mánaðarins í heild sinni má sjá hér