Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar aldar skeið. Íslenska ríkið keypti húsið árið 2002, þegar öld var liðin frá fæðingu skáldsins, og tveimur árum síðar var það opnað almenningi.

Húsið er safn Halldórs Laxness þar sem heimili og vinnustaður hans eru látin haldast óbreytt. Stærstu vistarverurnar eru stór stofa á jarðhæð og skrifstofa Halldórs á annarri hæð. Þar er bókasafn hans varðveitt svo og vinnupúltið sem hann stóð gjarnan við.

Mikill fjöldi listaverka setur sterkan svip á heimilið, meðal annars eftir Svavar Guðnason, Nínu Tryggvadóttur, Jóhannes Kjarval og danska málarann Asger Jörn. Einnig gefur þar að líta útsaumsmyndir eftir Auði Laxness sem var annáluð hannyrðakona. Húsgögn og innanstokksmunir eru þeir sömu og í tíð Halldórs og Auðar.

Gljúfrasteinn
Gljúfrasteinn var reistur árið 1945 og arkitekt hússins var Ágúst Pálsson. Ósk Halldórs var að húsið yrði sveitalegt en samt nútímalegt og laust við allt tildur. Bílskúr, þar sem nú er móttökuhús safnsins, var byggður við húsið og þótti mikil nýlunda í Mosfellssveit á sinni tíð. Ekki síður þótti það sérstakt þegar sundlaug var byggð í garðinum um 1960.
Oft var gestkvæmt á Gljúfrasteini. Þangað komu iðulega erlendir þjóðhöfðingjar á leið til Þingvalla og á fimmta áratugnum voru haldnir tónleikar í stofunni þar sem heimsþekktir listamenn léku fyrir boðsgesti.

Margmiðlunarsýning
Móttökuhúsið er fyrsti viðkomustaður gesta á Gljúfrasteini. Þar er hægt að skoða margmiðlunarsýningu um ævi og verk skáldsins. Saga Halldórs er samofin sögu 20. aldarinnar og er því einnig brugðið upp svipmyndum úr sögu Íslands og umheimsins. Fjöldi ljósmynda og kvikmynda er notaður í sýningunni sem er aðgengileg á gagnvirkum snertiskjá á íslensku, ensku og sænsku. Í móttökuhúsinu er einnig lítil verslun þar sem áhersla er lögð á úrval bóka skáldsins á ýmsum tungumálum, og eru allar bækurnar merktar með sérstökum stimpli safnsins.

Skoðunarferðir
Boðið er upp á vandaða hljóðleiðsögn um húsið á íslensku, ensku, dönsku, sænsku og þýsku en hægt er að fá leiðsögn á öðrum tungumálum í samráði við starfsfólk. Gestum er ráðlagt að bóka sig fyrirfram með því að senda tölvupóst á gljufrasteinn@gljufrasteinn.is eða hringja í síma 586 8066.

Opnunartími og aðgangseyrir
Aðgangseyrir er 800 krónur, aldraðir og öryrkjar greiða 500 krónur. Börn yngri en 18 ára, ókeypis.
Gljúfrasteinn er opinn alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17 frá 1. september til 31 maí . Safnið er opið alla daga frá kl. 9-17 frá 1. júní til 31. ágúst.

Aðgengi fyrir fatlaða
Aðgengi fyrir fólk í hjólastólum er í móttökuhúsinu og á fyrstu hæð hússins. Þess ber að geta að Gljúfrasteinn var byggður árið 1945 og því eru þröskuldar í húsinu. Undir venjulegum kringumstæðum er ekki hægt að aka alveg heim í hlaðið en hægt er að óska sérstaklega eftir því og er gestum þá bent að hafa samband við starfsmenn safnsins sem veita fúslega aðstoð eftir þörfum.

Garðurinn og gönguleiðirnar
Halldór Laxness var mikill útivistarmaður og gekk mikið í nágrenni Gljúfrasteins enda umhverfið fagurt. Gestir eru hvattir til að nýta sér gönguleiðirnar í nágrenni hússins sem stendur við ána Köldukvísl og er byggt í landi jarðarinnar Laxness þar sem Halldór ólst upp. Garðurinn umhverfis húsið er opinn almenningi og hentugar gönguleiðir eru til dæmis upp með ánni í átt að eyðibýlinu Bringum og niður með Köldukvísl í áttina að Guddulaug. Halldór segir frá lauginni í einni bóka sinna og taldi vatnið sérlega heilnæmt og ljóst er að ískalt lindarvatnið úr Guddulaug svíkur engan.