Ritvél, hvađ er nú ţađ?

Nemendahópar leikskólabarna, grunn-og framhaldskólanema eru bođnir velkomnir á Gljúfrastein.

Bođiđ er upp á sérsniđnar heimsóknir fyrir hvert og eitt aldursstig. Viđ hvetjum kennara til ađ hafa samband, kynna sér tilbođin og bóka heimsókn fyrir bekki eđa árganga.



Frítt er fyrir nemendahópa og hópstjóra sem koma í námsferđ á Gljúfrastein.

Markmiđ međ skólaheimsóknum á Gljúfrastein er ađ:
- vekja áhuga á Halldóri Laxness, ćvi hans, verkum og fjölbreyttum áhugasviđum
- bjóđa skólum upp á hentuga og áhugavekjandi námskosti byggđa á upplifun og leik
- heimsóknin verđi kveikja ađ skapandi hugsun og hvati til ađ lesa, skrifa, teikna, mynda, yrkja og tjá sig međ öllu mögulegu móti


Dóri litli í Laxnesi. Skólaheimsókn fyrir 1.-4. bekk
Halldór Laxness lifđi nćr alla tuttugustu öldina og ţar međ ţćr miklu samfélags- og tćknibreytingar sem urđu á öldinni. Í gegnum ćvi Halldórs Laxness fá nemendur tćkifćri til ađ átta sig á tímanum og ţví hve margt hefur breyst frá ţví Halldór var á ţeirra aldri. Sérstök áhersla er lögđ strákinn Dóra litla í Laxnesi og ţađ sem hann fékkst viđ sem krakki og síđar sem fullorđinn mađur.

Hvađ dettur ţér í hug? Skólaheimsókn fyrir 5.-7. bekk
Nemendur kynnast ćvi og störfum Halldórs Laxness međ sérstakri áherslu á skrifandi strákinn Halldór Guđjónsson í Laxnesi. Heimsókninni er ćtlađ ađ kveikja skapandi hugsun og hvetja krakkana til ţess ađ lesa, skrifa, teikna, yrkja eđa tjá sig á annan hátt. Nemendur kynnast nokkrum hversdagslegum hlutum á Gljúfrasteini sem ratađ hafa í skáldskap Halldórs Laxness. Ţannig er lögđ áhersla á ađ skáldskapur getur kviknađ af öllu mögulegu í hversdeginum, hversu ómerkilegt sem ţađ kann ađ virđast. Viđ upphaf heimsóknarinnar fá nemendur pappírsörk og blýantsstubb, líkt og skáldiđ notađi sjálft á gönguferđum sínum, og skrá hjá sér ţađ sem ţeim dettur í hug á međan á heimsókninni stendur.

Hér má sjá myndband frá skólaheimsókn á miđstigi
Hljóđleiđsögn og margmiđlunarsýning. Skólaheimsókn fyrir 8.-10. bekk
Elstu krakkarnir fara í hefđbundna hljóđleiđsögn um húsiđ, kynnast heimilislífinu á Gljúfrasteini og um leiđ störfum Halldórs Laxness. Í móttökuhúsi safnsins frćđast nemendur um verk og störf Halldórs í gegnum margmiđlunarsýningu. Sérstök áhersla er lögđ á ţann tíma ţegar Halldór var unglingur og ungur mađur ađ feta sín fyrstu skref sem rithöfundur.

Einnig stendur til bođa ađ hlýđa á stuttan fyrirlestur um ákveđiđ verk sé ţess óskađ.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk safnsins í síma 586-8066 eđa í tölvupósti gljufrasteinn@gljufrasteinn.is